Tollstjóri - Fréttir
8. september 2010
Málþing um hugverkarétt

Þann 3. september sl. fór fram málþing í kjölfar árlegs fundar norrænna sérfræðinga tollstjóraembættanna á sviði hugverkaréttarbrota (Intellectual Property Rights/IPR). Ísland varð þátttakandi í þessu samstarfi árið 2009, en allt frá árinu 1995 hafa ákvæði um hugverkarétt verið að finna í íslenskum tollalögum.
7. september 2010
Nýir úrskurðir
Nokkrir úrskurðir um tollamál hafa nýlega verið birtir hér á vefnum.
Úrskurði Tollstjóra er hægt að skoða hér
26. ágúst 2010
Málstofa Tollstjóra um hugverkarétt
Þann 2.-3. september nk. fer fram árleg ráðstefna norrænu tollstjóraembættanna um hugverkaréttarbrot (IPR) á Hótel Loftleiðum. Þetta er í þriðja sinn sem ráðstefna af þessu tagi er haldin og í fyrsta sinn sem hún fer fram á Íslandi.
27. júlí 2010
Fíkniefnaeftirlit
Embætti Ríkislögreglustjóra hefur sett upp sérstök fíkniefnaleitarteymi til eftirlits á landinu um Verslunarmannahelgina. Tollverðir og fíkniefnaleitarhundar frá Tollstjóra verða lögreglunni til aðstoðar. Teymin munu sinna eftirliti við brottför skipa og flugfara til Vestmannaeyja sem og á öðrum ferðaleiðum.