Sleppa leiðarkerfi
Upplýsingavefur tollstjóra Veist þú um ólöglegan innflutning? - Láttu vita

Endurreisn efnahagslífsins (opnast í nýjum glugga)CITES - dýr og plöntur í útrýmingarhættuUpplýsingar fyrir þá sem ætla að flytja milli norræna ríkja, vinna þar eða stunda námNordisk etax - upplýsingavefur um skattamál á norðurlöndum

Tollstjóri - Hugbúnaðarhús

Upplýsingasíða fyrir hugbúnaðarhús

Hér er að finna upplýsingar fyrir hugbúnaðarhús, sem framleiða, selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar og SMT-tollafgreiðslu (EDI). Samkvæmt gildandi reglugerð skal hugbúnaður vegna SMT-tollafgreiðslu inn- og útflytjenda vera viðurkenndur til þeirra nota af Tollstjóra. 

Áríðandi tilkynning vegna EDI/SMT-tollafgreiðslu

  • breytingar á greiðslufresti aðflutningsgjalda, gjalddögum
  • hefur áhrif á hugbúnað innflytjenda/tollmiðlara fyrir tollskýrslugerð og tollafgreiðslu
  • Tekur gildi 1. maí 2009, en einnig afturvirkar breytingar frá 1. janúar 2009

Tilkynning til tollmiðlara og hugbúnaðarhúsa sem þjónusta tollskýrslugerðarhugbúnað þeirra - breytingar sem þarf að gera fyrir 1. janúar 2009
1. janúar 2009 verða tekin upp rafræn skil á upplýsingum úr einföldum tollskýrslum (E-1 í stað E-8-Einfaldari tollskýrsla) vegna innflutnings og útflutnings.
 
Innflutningur og útflutningur
SMT-tollskýrslur, skuldfærslutilkynningar, lágmarkskröfur til hugbúnaðar, kódar og fleira vegna inn- og útflutnings vara.
 
Farmflytjendur, toll- og skipamiðlarar
SMT-farmskrár og afhendingarheimildir vegna innflutnings, útflutningsheimildir og fleira vegna inn- og útflutnings vara og vörslu þessara aðila á ótollafgreiddum vörum í geymslum sínum.

Tollskrárlyklar
Hugtakið tollskrárlyklar er notað yfir skrá allra tollskrárnúmera og atriði tengdu hverju tollskrárnúmeri, eins og þau eru skráð í tollskrá Tollakerfis, tölvukerfi tollafgreiðslu, hjá tollstjórum.
 
Breytingar á virðisaukaskatti, vörugjöldum, tollum, úrvinnslugjöldum, tollkvótum og tollskránni 1. mars 2007
Hér er gerð grein fyrir helstu breytingum á virðisaukaskatti, vörugjöldum, tollum, úrvinnslugjöldum, tollkvótum og tollskránni, sem taka gildi 1. ars 2007.
  
Áríðandi tilkynning til hugbúnaðarhúsa - Úrvinnslugjald - Breytingar sem gera verður á hugbúnaði til tollskýrslugerðar fyrir 1. janúar 2006
Breytingar á lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald sem taka gildi 1. janúar 2006 og kalla á breytingar á tollskýrslugerðar-hugbúnaði allra innflytjenda og innihaldi SMT/EDI skeyta vegna nýrra svæða í tollskýrslu; breytingar á aðflutningsskýrslu; ný gagnastök í EDI skeytum; breytingar á tollskrárlyklum o.fl.

Listi yfir hugbúnaðarhús, sem framleiða, selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar og SMT-þýðendur 

TollskráinTollalínan - allt um þína tollafgreiðslu!Gjaldskrá fyrir innheimtu þjónustugjalda vegna tollafgreiðslu tolleftirlits o.fl. (pdf skjal 44KB)