Innheimta skatta og gjalda er grundvöllur þess að ríkið geti veitt samfélagslega þjónustu. Sköttum og gjöldum er varið í þágu samfélagsins. Stærstu útgjaldaliðir ríkissjóðs eru á sviði heilbrigðismála, almannatrygginga og velferðamála og menntamála.
Álagning skatta og innheimta þeirra er aðskilin á Íslandi. Skattar og gjöld eru lögð á af skattstofum, ríkisskattstjóra og ýmsum stofnunum.
Tollstjóri hefur á verksviði sínu innheimtu skatta og gjalda. Embættið innheimtir meirihluta álagðra skatta og gjalda á Íslandi.
|
Ríkisreikningur á vef fjársýslu ríkisins |