Gjöld sem ekki hafa verið greidd á eindaga eru vanskilakröfur(skuldir).
Innheimtumanni ríkissjóðs er skylt að innheimta allar kröfur. Það frestar ekki íþyngjandi vanskilaúrræðum þótt skattskýrslu hafi ekki verið skilað inn eða skattálagning verið kærð.
Til að koma í veg fyrir íþyngjandi innheimtuaðgerðir er bent á að hafa samband við innheimtumann ríkissjóðs og kanna möguleika á gerð greiðsluáætlunar.
Dráttarvextir reiknast samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu á gjaldfallna kröfu frá gjalddaga hafi ekki verið greitt á eindaga. Í lögboðnum tilvikum bætist við vanskilaálag sem reiknast af höfuðstól. Þar sem álagning dráttarvaxta og vanskilaálags er lögboðin er ekki hægt að semja um eða fella niður dráttarvexti og álag.
Það er hagur gjaldanda að greiða skattskuldir sínar sem fyrst til að koma í veg fyrir óafturkræfan kostnað við innheimtuaðgerðir og dráttarvexti sem leggjast á kröfuna við vanskil.
|
Hvernig get ég greitt? |