Sleppa leiðarkerfi
Upplýsingavefur tollstjóra Veist þú um ólöglegan innflutning? - Láttu vita
Textahamur - breyta lit á letri og bakgrunniUpplýsingarVeftréPrentaMinnka leturStækka leturLokuð svæðienglish

Endurreisn efnahagslífsins (opnast í nýjum glugga)CITES - dýr og plöntur í útrýmingarhættuUpplýsingar fyrir þá sem ætla að flytja milli norræna ríkja, vinna þar eða stunda námNordisk etax - upplýsingavefur um skattamál á norðurlöndum

Tollstjóri - Dánarbú

Aðstandendur dánarbúa

Framtalsskylda

Framtalsskylda dánarbús hvílir á erfingjunum. Vegna reglna um ábyrgð á greiðslu skattskulda er það erfingjum hagsmunamál að framtalsskil hins látna séu í góðu lagi.

Við andlát manns lýkur skattskyldu hans og við tekur skattskylda dánarbús hans ef hann lætur ekki eftir sig maka sem hefur heimild til að sitja í óskiptu búi. Upplýsingar um persónuafslátt og framtöl er að finna á upplýsingavef ríkisskattstjóra og vef skattstjórans í Reykjavík.

Skuldir - inneignir

Mjög mikilvægt er fyrir erfingja sem skipta dánarbúi einkaskiptum að huga vel að framtalsskilum og skuldastöðu hins látna því þeir eru persónulega ábyrgir fyrir öllum skuldbindingum hans, þ. á m. skattskuldum. Í því felst að kröfuhafar, þ. á m. innheimtumenn ríkissjóðs, geta gengið að hverjum þeirra fyrir sig og krafið um fulla greiðslu. Ef skattframtali er ekki skilað er skattstofninn almennt áætlaður. Skattáætlun er innheimt með sama hætti og um skattálagningu samkvæmt framtali væri að ræða.  Hafi erfingjar ekki frumkvæði að því að greiða skatta fer málið í vanskilainnheimtu hjá innheimtumanni ríkissjóðs (í Reykjavík hjá Tollstjóra og sýslumönnum utan Reykjavíkur). Erfingjar fá ekki sérstakar tilkynningar um skattskuldir eða skattálagningu heldur verða að leita eftir þeim upplýsingum sjálfir.

Inneign getur myndast hjá hinum látna. Erfingjarnir eiga lögmæta kröfu til hennar, sé ekki um að ræða önnur ógreidd opinber gjöld hins látna. Tollstjóri sendir út tilkynningar um inneignir til þeirra erfingja sem koma fram á erfðafjárskýrslu. Tollstjóri greiðir inneignina á reikning dánarbúsins eða með ávísun stílaðri á nafn dánarbúsins. Það er á ábyrgð erfingjanna að sækja inneignina og deila henni á milli sín.

Hvað er dánarbú og hvaða þýðingu hefur það?

Við andlát einstaklings verður til sjálfstæð lögpersóna, dánarbú, sem tekur tímabundið við öllum réttindum og skyldum hins látna. Frá því tímamarki ber dánarbúið sjálft skattskyldu sem sérstakur lögaðili. Skattskyldu dánarbúsins lýkur þegar eitthvert eftirtalinna á sér stað:

  • Skiptum dánarbúsins lýkur hjá sýslumanni vegna eignaleysis búsins
  • Dánarbúi hefur verið skipt einkaskiptum eða opinberum skiptum
  • Eftirlifandi maka er veitt leyfi til setu í óskiptu búi

Einkaskipti / opinber skipti

Grundvallarmunur er á einkaskiptum og opinberum skiptum dánarbús. Munurinn felst m.a. í því að með einkaskiptum öðlast erfingjar réttindi búsins og gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingum búsins. Einnig ber þeim skylda til að telja fram til skatts fyrir hönd búsins.

Einkaskipti

Erfingjar geta sótt um leyfi til einkaskipta hjá sýslumanni í því umdæmi sem búi er skipt að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Frekari upplýsingar um skipti dánarbúa er að finna á vefjum sýslumanna.

Frá því að sýslumaður veitir leyfið og þar til skiptum er lokið fara erfingjarnir með forræði búsins. Þeir einir eru bærir til að ráðstafa eignum og verðmætum búsins og svara fyrir skyldur þess. Eitt skilyrða leyfis til einkaskipta er að erfingjarnir gangist undir óskipta ábyrgð á skuldbindingum búsins.

Ýmsar upplýsingar

Upplýsingar um dánarbú, tilkynningu andláts, dánarbússkipti og greiðslu erfðafjárskatts má finna á vef sýslumannsins í Reykjavík, undir liðnum leiðbeiningar.

Á vef dómsmálaráðuneytisins má finna eyðublöð og upplýsingar um einkaskipti, setu í óskiptu búi og vottorð um tilkynningu andláts.

Einnig má finna ýmsar upplýsingar um skatta og tengd málefni á vef ríkisskattstjóra ýmsar upplýsingar um skatta og tengd málefni

Á vef skattstjórans í Reykjavík er einnig að finna upplýsingar um framtöl vegna dánarbúa.

Skattar og gjöld einstaklinga - þarftu að borga - áttu inni?Staðan þín - skoðaðu greiðslustöðu þína á þjónustusíðu RSKVefur ríkisskattstjóraNordisk etax - upplýsingavefur um skattamál á norðurlöndumRíkiskassinn.is vefur um peningana okkar