Vefspjall tollstjóra notar Svarbox® kerfið frá Modernus.
Svarboxin eru tvö, annars vegar fyrir innheimtumál og hinsvegar fyrir tollamál. Hægt er að senda fyrirspurnir og á opnunartíma er einnig hægt að spjalla beint við þjónustufulltrúa í gegnum vefinn.
Vefspjallið er ætlað öllum, en opnar að auki möguleika á beinum samskiptum milli þjónustufulltrúa tollstjóra og heyrnarlausra eða annara sem geta ekki eða eiga erfitt með að tala í síma.
Í vefspjallinu notum við stuttar og hnitmiðaðar spurningar og fáum stutt og hnitmiðuð svör. Þeim sem eru mjög lengi að vélrita er bent á að senda frekar fyrirspurn.
Ekki er hægt að svara hvaða spurningu sem er í vefspjallinu. Ef ekki er hægt að svara spurningu vísar þjónustufulltrúi á símanúmer sem hringja má í eða bendir viðkomandi á að senda fyrirspurn.
Háttvís notkun á vefspjallinu
Um samskipti í vefspjallinu gildir sami fyrirvari og um tölvupóst.
Leiðbeiningar:
Smellið á Svarbox hnappinn á forsíðu vefsins, veljið innheimtumál eða tollamál eftir því sem við á. Fylgið síðan leiðbeiningum í Svarboxinu.
Ef samskiptaglugganum er lokað meðan á spjalli stendur rofnar samtalið.
Látið okkur vita ef vandamál koma upp við notkun vefspjallsins.