Ertu að fara til útlanda? Ef þú hefur tollskyldan varning meðferðis þegar þú kemur aftur ber þér að framvísa honum í rauðu hliði. Grænt tollhlið er hins vegar fyrir þá sem eingöngu hafa tollfrjálsan farangur meðferðis.
Hvað má ekki flytja til Íslands?
Reglur um tollfríðindi ferðamanna veita hvorki undanþágu frá sérstökum innflutningsskilyrðum né innflutningsbanni sem ýmsar vörutegundir eru háðar samkvæmt lögum, reglugerðum eða öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.
Nánar um innflutningstakmarkanir og bönn
Aftur upp
Tollfríðindi
- Ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, mega hafa með sér tollfrjálst þann farangur sem þeir höfðu með sér til útlanda. Ennfremur mega ferðamenn hafa meðferðis tollfrjálsar verslunarvörur að verðmæti allt að 65.000 kr (krónur). Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 32.500 kr.
- Tollfrelsi matvara, þar með talið sælgæti og fæðubótarefni, er takmarkað við 18.500 kr. verðmæti og 3 Kg (Kílógrömm) að þyngd
- Við heimkomu geta ferðamenn þurft að sýna fram á að varningur sem þeir hafa meðferðis uppfylli skilyrði fyrir tollfrelsi:
- Það er því ráðlegt að halda til haga reikningum vegna hluta sem keyptir eru í ferðinni.
- Ef verðmætir hlutir eru teknir með í ferðina getur þurft að sýna fram á að þeir hafi verið fengnir hér á landi, til dæmis með því að sýna reikning eða ábyrgðarskírteini. - Áfengi og tóbak sem ferðamenn mega hafa með sér tollfrjálst:
- 1 lítra af sterku áfengi og 1 lítra af léttvíni eða
- 1 lítra af sterku áfengi og 6 lítra af bjór eða
- 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af bjór eða
- 3 lítra af léttvíni
- 200 vindlinga (1 lengju) eða 250 grömm af öðru tóbaki
Athugið að lágmarksaldur til að flytja inn áfengi er 20 ár og 18 ár til að flytja inn tóbak.
Nánar um tollfríðindi ferðamanna
Aftur upp
Tímabundinn innflutningur ökutækja
Þeim sem hyggst dvelja hér á landi í ár eða styttri tíma vegna atvinnu eða ferðalaga er heimilt að flytja inn bifreið, skráða erlendis, án greiðslu aðflutningsgjalda, enda séu eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
- Innflytjandi hefur eða hefur haft fasta búsetu erlendis
- Ökutækið er skráð erlendis og innflytjandi er skráður eigandi eða löglegur umboðsaðili
- Ökutækið er flutt til landsins eða keypt nýtt óskráð hér á landi þegar innflytjandi kemur til landsins eða í síðasta lagi mánuði síðar
- Ökutækið er vátryggt til notkunar á Íslandi eða hefur fullnægjandi tryggingu