Sleppa leiðarkerfi
Upplýsingavefur tollstjóra Veist þú um ólöglegan innflutning? - Láttu vita
Textahamur - breyta lit á letri og bakgrunniUpplýsingarVeftréPrentaMinnka leturStækka leturLokuð svæðienglish

Endurreisn efnahagslífsins (opnast í nýjum glugga)CITES - dýr og plöntur í útrýmingarhættuUpplýsingar fyrir þá sem ætla að flytja milli norræna ríkja, vinna þar eða stunda námNordisk etax - upplýsingavefur um skattamál á norðurlöndum

Tollstjóri - Tollskólinn

Tollskólinn

Við Embætti tollstjóra er starfræktur Tollskóli ríkisins sem veitir tollvörðum og tollendurskoðendum grunn- og sérmenntun í ýmsum greinum á sviði tollheimtu og tollgæslu. Tollstjóri getur ákveðið að aðrir en tollstarfsmenn sæki nám til skólans. Til að fá inngöngu í skólann þarf að þreyta inntökupróf.

Jafnframt sinnir skólinn sérhæfðu og almennu fræðslustarfi fyrir annað starfsfólk Tollstjóra sem tekur mið af þörfum og stefnumörkun þeirra.

Margvísleg sí- og endurmenntun tollstarfsmanna fer fram á vegum skólans auk þess sem haldin eru ýmis námskeið á hans vegum ætluð utanaðkomandi aðilum sem fást við inn- og útflutning, svo sem námskeið í tollskýrslugerð fyrir inn- og útflutning, tollflokkun vara, upprunamálum og fleiru.

Hægt er að fá frekari upplýsingar hjá Gunnlaugu Hartmannsdóttur starfsþróunarstjóra / skólastjóra Tollskólans í síma 560-0300 eða senda fyrirspurn.

Stutt myndband með kynningu á námi við Tollskólann


Reglugerð nr. 48/2010 um Tollskóla ríkisins, setningu og skipun í störf við tollendurskoðun og tollgæslu.
TollskráinTollalínan - allt um þína tollafgreiðslu!Yfir 1000 síður af upplýsingum um lög og stjórnvaldsreglur um tollamálHringdu í 800 5005 ef þú hefur upplýsingar um fíkniefni