Tollstjóri hefur sinnt forvarnarstarfi um fíkniefni frá því í janúar árið 2000. Hefur það verið með því sniði að einn eða fleiri tollverðir halda fræðslufyrirlestra víðs vegar um landið og hefur fíkniefnaleitarhundur ávallt verið með í för.
Fyrstu árin var það hundurinn Bassi sem fermingarbörn fengu að kynnast en nú hefur hundurinn Skuggi tekið við. Einnig hefur hundurinn Ned tekið að sér einn og einn fyrirlestur.
Hér er hægt að skoða myndband af hundum tollgæslunnar að störfum
Aðal áhersla hefur verið lögð á að tala við börn í fermingarfræðslu Þjóðkirkjunnar en einnig hefur verið reynt að ná til annarra barna á fermingaraldri, t.d. þeirra sem fermast borgaralegri fermingu.
Þess má geta að Biskupsstofa og Tollstjóri undirrituðu samning um forvarnarstarf meðal fermingarbarna þann 26. nóvember 2003. Kemur þar fram að öllum fermingarbörnum landsins skuli gefinn kostur á fræðslu um skaðsemi fíkniefna, þau fái að kynnast fíkniefnaleitarhundi og geti spurt spurninga.
Sérstakur forvarnavefur neitakk.is var gerður í tengslum við verkefnið. Á vefnum kennir margra grasa, þar er að finna fræðslu um skaðsemi fíkniefna, viðtöl við Unni Birnu og Magna og fólk sem þekkir til skaðsemi fíkniefna. Fjallað er stuttlega um starfsemi tollgæslunnar á Íslandi, auk þess sem á vefnum er verðlaunasamkeppni sem öll börn á fermingaraldri geta tekð þátt í.
Fyrirspurnir og nánari upplýsingar