Hér til vinstri á síðunni eru upplýsingar um helstu skatta og gjöld sem fyrirtæki greiða og eru til innheimtu hjá Tollstjóra.
Hér eru upplýsingar um bankareikninga sem hægt er að leggja inná þegar greiða á skatta og önnur gjöld.
Ef greiða á skuld að fullu er mikilvægt að fá upplýsingar um nákvæma greiðslustöðu, en hana er hægt að kalla fram á þjónustusíðu ríkisskattstjóra.
Athugið að greiðslur sem settar eru í póstlúgu Tollstjóra eftir kl. 15:45 og greiðslur í heimabanka eftir kl. 21 á kvöldin bókast næsta virka dag.