Innheimtumaður ríkissjóðs sér um útgreiðslu vaxtabóta. Nauðsynlegt er að gefa upp bankareikning, sem leggja má inn á.
Fylltu út neðangreint eyðublað og sendu til innheimtumanns ríkissjóðs í þínu umdæmi:
Beiðni til innheimtumanns ríkissjóðs um ráðstöfun greiðslna - einstaklingar
Vaxtabætur eru ákvarðaðar af ríkisskattstjóra samkvæmt upplýsingum á skattframtali. Útreikningur vaxtabóta er framkvæmdur í álagningarvinnslu og útborgunardagur er 1. ágúst.
Þó geta þeir sem hafa keypt eða hafið byggingu frá 1999 fengið vaxtabætur greiddar út fyrirfram. Fyrirframgreiðsla er bráðabirgðagreiðsla og í álagningarvinnslu eru vaxtabætur reiknaðar út og gerðar upp ef um of- eða vangreiðslu er að ræða. Útborgunardagar fyrirframgreiðslu eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí.
|
Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt Reglugerð nr. 990/2001 um greiðslu vaxtabóta |