Sleppa leiðarkerfi
Upplýsingavefur tollstjóra Veist þú um ólöglegan innflutning? - Láttu vita
Textahamur - breyta lit á letri og bakgrunniUpplýsingarVeftréPrentaMinnka leturStækka leturLokuð svæðienglish

Endurreisn efnahagslífsins (opnast í nýjum glugga)CITES - dýr og plöntur í útrýmingarhættuUpplýsingar fyrir þá sem ætla að flytja milli norræna ríkja, vinna þar eða stunda námNordisk etax - upplýsingavefur um skattamál á norðurlöndum

Tollstjóri - SMT tollafgreiðsla

Hvað er SMT-tollafgreiðsla?

SMT-tollafgreiðsla stendur fyrir rafræna tollafgreiðslu, sem fer fram með skjalasendingum milli tölva, einnig nefnd EDI-tollafgreiðsla (Electronic Data Interchange). Þegar SMT-tollafgreiðsla fer fram eru tollskýrslur sendar úr viðskiptahugbúnaði fyrirtækis, tollskýrslugerðarhugbúnaði, til tollsins með SMT-skeytum, og lesnar sjálfvirkt inn í Tollakerfið, tölvukerfi tollafgreiðslu. Svör frá Tollstjóra vegna tollafgreiðslunnar, til dæmis skuldfærslutilkynningar um álögð og skuldfærð aðflutningsgjöld, eru einnig send frá Tollstjóra til fyrirtækis með SMT-skeytum og lesin inn í viðskiptahugbúnað fyrirtækis. Viðkomandi farmflytjendum og flutningsmiðlurum eru einnig sendar inn- og útflutningsheimildir með SMT-skeytum vegna hverrar vörusendingar, sem fær tollafgreiðslu. Allar SMT-skeytasendingar fara fram í gegnum X.400 gagnahólf.

SMT-tollafgreiðsla bíður upp á samfellda tölvuvinnslu upplýsinga í tollskýrslu og svara frá Tollstjóra í viðskiptahugbúnaði fyrirtækis án tvískráningar upplýsinga, til dæmis vegna birgðabókhalds, vörureiknings, uppgjörs á skuldfærðum gjöldum, verðútreiknings o.fl. Að þessu leyti er SMT-tollafgreiðsla fullkomnari aðferð við tollafgreiðslu en VEF-tollafgreiðsla og leiðir af sér minni vinnu og meiri hagræðingu en VEF-tollafgreiðsla, en stofnkostnaður er meiri hjá viðkomandi fyrirtæki.

Öll helstu hugbúnaðarhús á Íslandi, sem framleiða og selja almennan viðskiptahugbúnað til nota hjá fyrirtækjum, bjóða upp á möguleika til SMT-tollafgreiðslu í sínum viðskiptahugbúnaði. Nánari upplýsingar veita hugbúnaðarhús, framleiðslu og söluaðilar viðskiptahugbúnaðar.

Samkvæmt gildandi tollalögum nr. 88/2005, m.s.br., skulu fyrirtæki, sem stunda inn- og útflutning, skila aðflutnings- og útflutningsskýrslum með rafrænum hætti til Tollstjóra.

Umsókn um SMT-tollafgreiðslu

Sækja skal um SMT-tollafgreiðslu á eyðublaði E19 hjá Tollstjóra. EF fyrirtæki fullnægir þeim kröfum sem settar eru gagnvart þeim sem tollafgreiða samkvæmt gildandi reglugerð er heimild til SMT-tollafgreiðslu veitt með bréfi frá Tollstjóra. Heimild til SMT-tollafgreiðslu gildir í öllum tollumdæmum.

Breytingar á umboði starfsmanna sem annast SMT- eða VEF-tollafgreiðslu hjá fyrirtæki

Tilkynna ber Tollstjóra um breytingar á umboði starfsmanna fyrirtækis til að framkvæma SMT- eða VEF-tollafgreiðslu, bæði þegar nýjir starfsmenn eru fengnir til þeirra starfa og þegar starfsmenn hætta. Eyðublað fyrir þessar tilkynningar má kalla fram hér:
Tilkynning um breytingar á umboði starfsmanna fyrirtækis til að framkvæma SMT-eða VEF-tollafgreiðslu - Hægt er að fylla eyðublaðið út á vefnum og prenta síðan út

Tilkynning nr. 2/2001
Um skyldu þeirra aðila, sem stunda inn- og útflutning á vörum í atvinnuskyni, til að taka upp rafræna tollafgreiðslu

Tilkynning til inn- og útflytjenda um rafræna tollafgreiðslu frá og með 1. janúar 2001

Aðstoð og upplýsingar varðandi tæknileg mál SMT-tollafgreiðslu fást hjá:

Tollstjóri
Tölvukerfi tollafgreiðslu og upplýsingavinnsla
Tryggvagötu 19
101 Reykjavík

Hægt er að senda fyrirspurn eða hringja í okkur í síma 560 0502 - símatími kl. 9 til 12 og kl 13 til 16 virka daga.

Aðalsímanúmer Tollstjóra: 560 0300
Upplýsingar: 560 0366 og 560 0522
Tollskjöl: 560 0300

TollskráinTollalínan - allt um þína tollafgreiðslu!Yfir 1000 síður af upplýsingum um lög og stjórnvaldsreglur um tollamálHringdu í 800 5005 ef þú hefur upplýsingar um fíkniefni