Spurning 5 - aðrar upplýsingar um útflutning


Á eingöngu við um útflytjendur/framleiðendur.

Spurningu númer 5, aðrar upplýsingar um útflutning, þarf bara að svara, ef fyrirtæki er merkt sem Útflytjandi/framleiðandi í spurningu 3, þar sem spurt er um atvinnustarfsemi fyrirtækisins.

Spurning númer 5 - spurt um 4 atriði.

Í spurningu númer fimm er spurt um eftirfarandi fjögur atriði:

  1. Lönd, sem flutt er til.

  2. Vara flutt út í gámum.

  3. Fjöldi gáma fluttur út sl. tvö ár.

  4. Áætlaður fjöldi gáma næstu tólf mánuði.

 

Hér á eftir eru nánari upplýsingar um atriðin fjögur, sem spurt er um.

Lönd sem flutt er til.

Vara flutt út í gámum?

Ef vara er flutt út í gámum á að merkja við en annars Nei.

Fjöldi gáma, fluttur út sl. tvö ár.

Þessari spurningu þarf bara að svara, ef spurningunni um það hvort vara væri flutt út í gámum var svarað játandi.

Í því tilfelli á að skrá hérna upplýsingar um fjölda gáma, sem fluttur var út síðastliðin tvö ár.

Áætlaður fjöldi gáma næstu tólf mánuði.

Þessari spurningu þarf bara að svara, ef spurningunni um það hvort vara væri flutt út í gámum var svarað játandi. Í því tilfelli á að skrá hérna upplýsingar um fjölda gáma, sem áætlað er að fluttur verði út á næstu tólf mánuðum.