VEF-farmskrárskil
Innskráning í VEF-farmskrárskil og aðrar þjónustugáttir er undir lás hnappnum efst á öllum síðum.
VEF-farmskrárskil er kostur sem embættið býður farmflytjendum, sem fullnægja þeim kröfum sem settar eru um skil á farmskrárupplýsingum. Um er að ræða vefviðmót, þar sem farmflytjendur skrá upplýsingar um komur og brottfarir flutningsfara til og frá landinu sem og upplýsingar um farmskrár. Þessar upplýsingar sendir farmflytjandi svo rafrænt til embættisins.
Aðgangur að VEF-farmskrárskilum:
- Sækja um heimild til VEF-farmskrárskila
- Nota þarf rafræn skilríki á korti til auðkenningar, sjá nánar á vef Auðkennis.
- Enn sem komið er er ekki hægt að nota skilríki á síma til að tengjast kerfinu
Nánari upplýsingar
Um vefsvæði VEF-farmskrárskila.
Eyðublöð:
Umsókn um heimild til VEF-farmskrárskila
Tilkynning um breytingar á umboði starfsmanna til VEF-farmskrárskila