Viðurkenndir útflytjendur
Viðurkenndur útflytjandi má gefa út yfirlýsingu á vörureikningi vegna allra sendinga án tillits til verðmætis þeirra, samanber 22. grein og a-lið 1. töluliðar 21. greinar bókunar 4 við EES-samninginn og samsvarandi ákvæði annarra fríverslunarsamninga.
Útflytjendur geta sótt um viðurkenningu til þess að gefa út yfirlýsingu um uppruna vöru á vörureikningi, óháð verðmæti hennar á þar til gerðu eyðublaði.
Nauðsynlegt er að nota Adobe Reader til að fylla eyðublaðið út (ekki vafra). Sjá leiðbeiningar.
Umsóknin skal sendast á netfangið fta@tollur.is eða með pósti á: Skatturinn, Lögfræðideild tollasviðs, Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.
Við útfyllingu umsóknareyðublaðs er nauðsynlegt að allir dálkar sem við eiga séu fylltir út og að nauðsynleg gögn fylgi umsókninni.
Nánar um áritun viðurkennds útflytjanda um uppruna vöru á vörureikningi
Listi yfir viðurkennda útflytjendur, pdf skjal - (226 kb.)
Listi yfir viðurkennda útflytjendur til Kína, pdf skjal - (108 kb.)