Leiðbeiningar með eyðublaðinu TS-E9

Yfirlýsing um tímabundinn innflutning á ökutæki með erlend skráningarmerki (E9)

  • Hlaðið niður eyðublaðinu og vistið á tölvu.
  • Fyllið út eyðublaðið í samræmi við leiðbeiningar neðar á síðunni.
  • Prentið útfyllt eyðublað, geymið í bílnum og sendið afrit á farmflytjanda Sjá lista yfir netföng hér að neðan.
Farmflytjandi: Netfang:
Smyril line e9@smyrilline.fo
Eimskip gjaldkeri@eimskip.is / ccs@eimskip.is
Samskip tourist@samskip.com

Innflytjanda ökutækis með erlent skráningarmerki ber að kynna sér skilyrði fyrir tollfrjálsum innflutningi og útfylla yfirlýsingu E9.

  • Innflytjandi þarf að fylla eyðublaðið út í pdf formi og senda til tollmiðlara fyrir brottför á leið til Íslands. Tollmiðlari sér um að koma eyðublaði til Tollstjóra.
  • Fylla þarf út eitt eyðublað fyrir hvert ökutæki sem er skráningarskylt skv. umferðarlögum nr. 50/1987.
  • Ef tengivagn fylgir ökutæki meðan á dvöl stendur er nægilegt að skrá tengivagn í þar til gerða dálka á sama eyðublaði og ökutæki.
  • Innflytjanda ber að fylla út í alla rauðmerkta reiti.
  • Afrit yfirlýsingar (E9) skal ávallt vera aðgengilegt í ökutæki vegna reglubundins eftirlits löggæsluaðila.
  • Ökutæki einstaklinga eru eingöngu ætluð til persónulegra nota fyrir innflytjanda, fjölskyldu hans eða samferðafólk, sem öll hafa skráða búsetu erlendis.
  • Komi ökutæki með farmflytjanda á farmskrá, þarf sama nafn að vera skráð á farmskrá og yfirlýsingu (E9).
  • Komi ökutæki með Norröna, þarf sama nafn að vera skráð í bókunarkerfi ferjunnar og yfirlýsingu (E9).
  • Ef nota á ökutæki í atvinnuskyni skal innflytjandi setja sig í samband við tollmiðlara eða Tollstjóra fyrir komu til landsins vegna bráðabirgðaafgreiðslu.
  • Ef nota á ökutæki til farþega- og farmflutninga eða útleigu skal innflytjandi kynna sér lög um farþega- og farmflutninga á landi nr. 28/2018 og lög um leigu skráningarskyldra ökutækja nr. 65/2015. Samgöngustofa sér um leyfisveitingar.
  • Við útflutning á ökutæki sem hefur verið notað í atvinnuskyni er lögð fram beiðni um skoðun á vöru með eyðublaðinu E14. Einnig skal ökutækið tollafgreitt úr landi með því að skila útflutningsskýrslu.
  • Ef innflytjandi tekur upp fasta búsetu á Íslandi skal hann tollafgreiða ökutæki um leið eða senda það úr landi. Þetta á einnig við þó að 12 mánuðir séu ekki liðnir frá komu ökutækis til landsins.

Tollstjóri getur farið fram á að innflytjandi ökutækis sýni fram á það með skjalfestum hætti að hann hyggist dvelja tímabundið á landinu og eigi lengur en 12 mánuði, t.d. með því að framvísa tímabundnum starfssamningi eða leigusamningi.

Fyrir nánari upplýsingar um tímabundinn innflutning á ökutækjum er innflytjendum bent á 7. gr. tollalaga nr. 88/2005 og reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi.

TS-E9 - Tímabundinn tollfrjáls innflutningur á ökutæki (Hægrismellið til að vista eyðublaðið á disk)

Nota verður Adobe Reader til að fylla eyðublaðið út ekki má nota annan hugbúnað.

Forritið er frítt og hægt að sækja hér: https://get.adobe.com/reader/

English version of the instructions

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum