Tollstjórinn í Reykjavík gengst fyrir grunnnámskeiði í tollskýrslugerð

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollstjórinn í Reykjavík gengst fyrir grunnnámskeiði í tollskýrslugerð

15.05.2004

Fyrirtæki og einstaklingar sem fást við inn- og útflutning athugið.     

  1. Tollskýrslugerð vegna útflutnings (12 tímar) 2. - 4. júní nk. frá kl. 8.10 – 11:55.
          
    Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða útflutning.
          
    Farið verður yfir útfyllingu og útreikninga útflutningsskýrslunnar, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o. fl.

  2. Tollskýrslugerð v/innflutnings (20 tímar) 7. - 11. júní nk. frá kl. 8.10 – 11:55.
         
    Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða innflutning.
          
    Farið verður yfir helstu fylgiskjöl og útreikninga, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o.fl.

Þátttaka (hámark 17 þátttakendur á hverju námskeiði) tilkynnist fyrir 25. maí  n.k. til tollskólans að Skúlagötu 17 í síma 5600 557/551, eða á netfangið johann.olafsson@tollur.is.

     

Reykjavík, 15. maí 2004  

Tollstjórinn í Reykjavík

Til baka