Síðasti dagur tollminjasýningar

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Síðasti dagur tollminjasýningar

14.12.2005

Nú eru síðustu forvöð að sjá sýningu sem efnt var til í tilefni af 70 ára afmæli Tollvarðafélags Íslands. Sýningin er í Tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík (á jarðhæð í vesturenda hússins). Þar má m.a. sjá einkennisbúninga tollvarða frá ýmsum tímum, skjöl og ljósmyndir sem tengjast tollgæslu, ýmsa haldlagða muni svo sem egg- og skotvopn og sýnishorn af felustöðum fyrir smygl.

Sýningin er opin frá kl. 13-17 í dag.

Til baka