Breyting á reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi
03.07.2008
Fjármálaráðuneyti hefur gefið út reglugerð nr. 634/2008 um breytingu á reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi.
REGLUGERÐ | |
um breytingu á reglugerð nr. 630/2008, um ýmis tollfríðindi. | |
1. gr. 3. tölul. A. liðar 1. mgr. 4. gr. orðast svo: 1 lítra af sterku áfengi eða 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af öli. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar í stað. Fjármálaráðuneytinu, 1. júlí 2008. F. h. r. Maríanna Jónasdóttir. Lilja Sturludóttir. |
|
B-deild - Útgáfud.: 1. júlí 2008 |
Til baka