Sterar í loftpressu

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Sterar í loftpressu

16.10.2009

Í byrjun október fann tollgæslan við hefðbundið eftirlit talsvert magn stera í vörusendingu til fyrirtækis.  Í sendingunni var loftpressa og höfðu sterarnir verið tryggilega faldir í loftkút hennar. Í kútnum reyndust vera Testosteron-ampúllur 2.608 millilítrar (2608 stykki) og 10.334 stykki af steratöflum.

Tollstjóri afhenti lögreglu málið til rannsóknar. Við yfirheyrslu hjá lögreglu viðurkenndi grunaður maður að hafa flutt inn sterana og telst málið upplýst.

Hér eru nokkrar ljósmyndir af smyglvarningnum:

Sterar í loftpressu

Sterar í loftpressuSterar í loftpressu

 

Til baka