Uppboð á ótollafgreiddum vörum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Uppboð á ótollafgreiddum vörum

16.10.2009

Laugardaginn 17. október 2009 kl. 12:00 verða boðnir upp lausafjármunir í Vöruhóteli Eimskips við Holtagarða, Reykjavík - ekið inn til hægri úr hringtorgi og beint inn um hlið, inngangur í hurð 16, svæðið opnar klukkan 12.

Um er að ræða ótollafgreidda vöru þar sem aðflutningsgjöld eru fallin í gjalddaga. Meðal vara sem boðnar verða upp eru húsgögn, fatnaður, skór, heimabíó og varahlutir. Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla, einungis debetkort eða peningar. Greiðsla við hamarshögg.

Einnig verða boðnar upp tollafgreiddar ósóttar vörur frá Eimskip Ísland ehf.

Sýslumaðurinn í Reykjavík heldur uppboðið.

Listi yfir allar vörur, sem boðnar verða upp (pdf 13 KB)

Nákvæmari lista yfir vörur sem boðar verða upp verður dreift í á uppboðsstað.

Til baka