Alþjóðleg aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Alþjóðleg aðgerð gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu

14.10.2010

Nýlega er lokið alþjóðlegri aðgerð sem miðaði að því að uppræta sölu á fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu. Tolla- og lögregluyfirvöld um allan heim tóku þátt í þessari aðgerð. Tollgæslan á Íslandi tók þátt í aðgerðinni og voru póst og hraðsendingar undir sérstöku eftirliti á meðan á aðgerðinni stóð. Hundruð heimasíðna var lokað í aðgerðinni, mikið magn ólöglegra lyfja gert upptækt og fjöldi einstaklinga handteknir.

Interpol hefur gefið út fréttatilkynningu vegna „Operation Pangea III" en þar er vel farið yfir aðgerðina. Jafnhliða þessari aðgerð hefur Interpol gefið út seríu af stuttum You Tube myndböndum sem ber heitið "Don''t Be Your Own Killer" en þar eru mjög sláandi dæmi um skelfilegar afleiðingar lyfjakaupa á netinu. Mælt er eindregið með því að fólk horfi á myndbönd sem er að finna neðst í fréttatilkynningunni.

Tollstjóri veitir ekki frekari upplýsingar um málið 

Tengt efni: Falsaðar vörur

Til baka