Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins
Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins hefst 17. janúar 2011. Á námskeiðinu er farið yfir lög og reglur sem gilda um tollmeðferð vöru, þar á meðal tollflokkun, tollskýrslugerð, meðferð ótollafgreiddrar vöru, ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og upplýsingum sem veittar eru tollyfirvöldum, og reglum um greiðslufrest aðflutningsgjalda.
Athygli er vakin á því að starfsmenn tollmiðlara, sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra, skulu hafa sótt námskeiðið.
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 17. janúar - 23. febrúar 2011
Tími: kl. 13.00 - 16:00
Lengd: 100 kennslustundir
Staður: Tryggvagata 19.
Kostnaður: 125.000 kr.
Skráningarfrestur er til 10. janúar 2011
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir@tollur.is
Skráið ykkur hér
Til baka