Fölsuð Casio úr til sölu á íslenskum vefsíðum
06.10.2011
Í sumar hefur töluvert borið á vefsíðum t.a.m. facebook sem gerðar eru útaf íslenskum aðilum og auglýsa þeir fölsuð Casio tölvuúr til sölu sem ekta. Þessi úr eru í skærum litum með dökkum ramma í glerinu. Ekta Casio úr frá framleiðanda hafa ekki þennan dökka ramma heldur er ramminn í glerinu samlitur ólinni og kassanum. Casio úr eru eingöngu seld á Íslandi hjá viðurkendum aðilum sem veita alhliða þjónustu.
Hér er ekki einungis um að ræða brot á vörumerkjarétti Casio, heldur eru kaupendur blekktir. Þessi fölsuðu úr er ekki hægt að þjónusta á nokkurn hátt þar sem varahlutir eru ekki til.
Ekta Casio úr (rammi í gleri samlitur ólinni) | Fölsuð Casio úr (dökkur rammi í gleri) | |
Til baka