Álag á þjónustuveri innheimtusviðs í kjölfar útsendingar innheimtubréfa
30.11.2011
Viðskiptavinir þjónustuvers Tollstjóra beðnir um að sýna skilning á lengri biðtíma en venjulega.
Til hagræðingar fyrir viðskiptavini bendum við á að hægt er að senda tölvupóst á netfangið fyrirspurn[hja]tollur.is.
Einnig geta viðskiptavinir Tollstjóra séð skuldastöðu sína á þjónustusíðu ríkisskattstjóra www.skattur.is með því að nota kennitölu og veflykil til innskráningar (sama veflykil og notaður er þegar skattframtali er skilað).
Þeim sem vilja greiða er bent á upplýsingar um bankareikninga á síðunni: Uppgjör skatta og gjalda
Til baka