Tvö ný tilvik þar sem móttöku EDI/SMT-aðflutningsskýrslu er hafnað hjá Tollstjóra

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tvö ný tilvik þar sem móttöku EDI/SMT-aðflutningsskýrslu er hafnað hjá Tollstjóra

07.06.2012

Tvö ný tilvik þar sem móttöku EDI/SMT-aðflutningsskýrslu er hafnað í tollafgreiðslukerfi Tollstjóra með CUSGER höfnunarskeyti taka gildi 8. júní 2012. EDI/SMT-aðflutningsskýrslan er þá ekki móttekin til tollmeðferðar og skráð inn í tollafgreiðslukerfi Tollstjóra og sent er sjálfvirkt CUSGER höfnunarskeyti með skýringum. Nýju tilvikin eru:

  • Farmskrárnúmer í ósamræmi við farmskrá.
  • Brúttóþyngd í ósamræmi við farmskrá.

Nánar: Farmskrárnúmer í reit 11 eða brúttóþyngd í reit 12 í aðflutningsskýrslu (ebl. E1) er ekki útfyllt eða ekki rétt útfyllt, þ.e. stemmir ekki við farmskrárnúmer eða brúttóþyngd í farmbréfi í farmskrárkerfi tollafgreiðslukerfis hjá Tollstjóra.

Nánari upplýsingar

Um tollamál og tollafgreiðslu: Upplýsingaveita tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315

Um tæknilega framkvæmd: TTU-deild, tölvukerfi tollafgreiðslu og upplýsingavinnsla, hjá Tollstjóra: ttu[hja]tollur.is eða TTU þjónustuvakt, sími: 560 0505

Til baka