Störf í boði hjá Tollstjóra
20.10.2012
Tollstjóri leitar að háskólamenntuðu fólki til að verða sérfræðingar í tollamálum. Verkefni Tollstjóra taka mið af bestu framkvæmd og alþjóðlegum stöðlum og fela meðal annars í sér alþjóðleg samskipti, verkefnastjórnun, ferlaþróun, samskipti við atvinnulíf, ráðuneyti og aðrar stofnanir. Í boði eru mikil tækifæri og starfsnám fyrir rétta aðila, áhugaverð og krefjandi störf sem henta jafnt konum sem körlum.
Til baka