Þúsundir jólagjafa á ferð og flugi
Nú nálgast jólin og fjölmargir eiga von á sendingum með jólagjöfum frá ættingjum og vinum, sem búsettir eru erlendis. Til marks um fjölda þessara sendinga má geta þess að í fyrra voru skráðar bögglasendingar tæplega sex þúsund talsins síðustu tvo mánuðina fyrir jól.
Starfsmönnum Tollstjóra er það bæði ljúft og skylt að benda landsmönnum á að í ákveðnum tilvikum þarf ekki að greiða tolla og önnur aðflutningsgjöld af jólagjöfum sem sendar eru til landsins.
Þetta á þó aðeins við um gjafir sem gefandi búsettur erlendis hefur með sér eða sendir til Íslands, en gildir hins vegar hvorki um innflutning í atvinnuskyni né fyrir gjafir, sem einstaklingur búsettur á Íslandi pantar frá útlöndum eða kaupir erlendis.
Skilyrði fyrir tollfrjálsum innflutningi jólagjafa eru:
Rétt er að benda á að undanþágan tekur ekki til áfengis og tóbaks.
Nánari upplýsingar um undanþágu frá greiðslu aðflutningsgjalda af gjöfum
Til baka