Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

05.12.2012

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins hefst 14. janúar 2013. Á námskeiðinu er farið yfir lög og reglur sem gilda um tollmeðferð vöru, þar á meðal tollflokkun, tollskýrslugerð, meðferð ótollafgreiddrar vöru, ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og upplýsingum sem veittar eru tollyfirvöldum, og reglum um greiðslufrest aðflutningsgjalda.

Athygli er vakin á því að starfsmenn tollmiðlara sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra skulu hafa sótt námskeiðið.

Nánari upplýsingar:

Dagsetning:    14. janúar - 22. febrúar 2013

Tími:               kl. 13.00 - 16:00

Lengd:            100 kennslustundir

Kostnaður:      135.000 kr.

Skráningarfrestur er til 6. janúar 2013

Skráning sendist á netfangið: asta.ornudottir[hja]tollur.is

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir[hja]tollur.is

Til baka