Vinnuhópur vegna efna til sprengjugerðar

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Vinnuhópur vegna efna til sprengjugerðar

19.12.2012

Myndaður hefur verið vinnuhópur ríkislögreglustjóra og Tollstjóra vegna innflutnings, sölu og dreifingar á grunnefnum sem nýta má til sprengjugerðar.

Hópinn skipa fulltrúar Tollstjóra og greiningardeildar og sérsveitar ríkislögreglustjóra. Markmið starfsins er að afla upplýsinga um skipan þessara mála hérlendis, löggjöf, leyfaveitingar og eftirlit og koma á samstarfi við aðrar stofnanir sem fara með sviðsábyrgð á þessum málaflokkum.

Vinnuhópurinn hefur þegar leitað eftir samstarfi við opinberar stofnanir sem hafa eftirlit með slíkum efnum í því skyni að takmarka eftir föngum möguleika einstaklinga eða hópa til að setja saman sprengjur úr annars löglegum efnum.

Sprengja á Hverfisgötu

Til baka