Tilkynning til innflytjenda, tollmiðlara og hugbúnaðarhúsa. Breytingar á skuldfærslu aðflutningsgjalda og gjalddögum vegna ársins 2013

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tilkynning til innflytjenda, tollmiðlara og hugbúnaðarhúsa. Breytingar á skuldfærslu aðflutningsgjalda og gjalddögum vegna ársins 2013

19.03.2013

Áríðandi tilkynning m.a. vegna EDI/SMT-tollafgreiðslu - breytingar á skuldfærslu aðflutningsgjalda, gjalddögum; hefur áhrif á hugbúnað innflytjenda og tollmiðlara fyrir tollskýrslugerð og tollafgreiðslu. Ennfremur upplýsingar er varða tollreikninga frá Tollstjóra á pappír og á vef VEF-tollafgreiðslu

Tekur gildi 1. apríl 2013, en einnig afturvirkar breytingar frá 1. janúar 2013

Skv. lögum nr. 21/2013 um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (dreifing gjalddaga) hafa tekið gildi breytingar á reglum um hvernig aðflutningsgjöld eru skuldfærð við tollafgreiðslu; breytingar á gjalddögum. Þessar breytingar eru tímabundnar ráðstafanir og gilda fyrir árið 2013, þ.e. um aðflutningsgjöld, sem skuldfærð hafa verið og verða við tollafgreiðslu innfluttra vara á árinu. Gera þarf breytingar á hugbúnaði sem notaður er við EDI/SMT-tollafgreiðslu innfluttra vara hjá innflytjendum og tollmiðlurum. Lagt er til að breytingarnar verði þannig útfærðar að gert sé ráð fyrir að fyrra fyrirkomulag um skuldfærslu aðflutningsgjalda geti tekið gildi aftur (þann 1. janúar 2014 að öllu óbreyttu). Breytingunum á skuldfærslu gjalda er lýst hér að neðan og áhrif þeirra á EDI/SMT-tollafgreiðsluna o.fl. Breytingarnar gilda um neðangreind tilvik. Önnur tilvik skuldfærslu aðflutningsgjalda eru óbreytt.

Þegar EDI/SMT-aðflutningsskýrsla fær tollafgreiðslu hjá Tollstjóra er EDI-skeyti, nefnt CUSTAR skeyti, sent til innflytjanda eða e.a. tollmiðlara, nefnt skuldfærslutilkynning, sem lesið er inn í hugbúnað hans. Í skeytinu eru m.a. upplýsingar um álögð og skuldfærð gjöld, sundurliðuð niður á hvert tollskrárnúmer/línu í skýrslunni. Fyrir hvert gjald á tollskrárnúmeri eru upplýsingar um hvernig gjald er skuldfært; skuldfærslukódi, S2, S4 o.fl. kódar, sem gefa til kynna gjalddaga tolls/gjalds. Í hugbúnaði innflytjanda/tollmiðlara eru síðan töflur sem túlka þessa kóda miðað við tollafgreiðsludag í CUSTAR skeytinu. Hver skuldfærslukódi segir til um uppgjörstimabil og eindaga gjalda, sem skuldfærð eru á uppgjörstímabili skv. reglu kódans. Þetta getur síðan haft áhrif á birtingu upplýsinga á skjá, útprentunum í hugbúnaði o.fl.

Breytingarnar varða þessa kóda, sem hafa verið í gildi við tollafgreiðslu frá 1. janúar 2013:

S2 kódi, almenna skuldfærslureglan: Uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv. Eindagi gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu er 15. næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Dæmi: Eindagi jan-feb 2013 tímabils er 15. mars 2013

S4 kódi, skuldfærsla vörugjalds (X* vörugjöld) aðila, sem skráðir voru hjá Ríkisskattstjóra, nú Tollstjóra, sem vörugjaldsskyldir (tiltölulega fá fyrirtæki í innflutningi nota þessa skuldfærslureglu). Uppgjörstímabil eru tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv. Eindagi vörugjalds er þá 28. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Dæmi: Eindagi jan-feb 2013 tímabils er 28. apríl 2013

Frá og með 1. apríl 2013 til 31. desember 2013 verða neðangeindir skuldfærslukódar í CUSTAR skeytum í stað S2 og S4 kóda:

SB (kemur í stað S2) kódi, almenna skuldfærslureglan: Uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv. Eindagar gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu eru tveir; helmingur upphæðar gjalds gjaldfellur á hvorum eindaga: Fyrsti eindagi er 15. næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils Annar eindagi er 5. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils Dæmi: Eindagar mars-apríl 2013 tímabils eru: 15. maí 2013 og 5. júní 2013 (Þetta er að öllu leyti alveg sama fyrirkomulag og gilti árið 2012, þ.e. frá 1. apríl til 31. desember 2012)

S9 (kemur í stað S4) kódi, skuldfærsla vörugjaldsaðila á vörugjaldi (X* vörugjöld), sem skráðir voru hjá Ríkisskattstjóra, nú Tollstjóra, sem vörugjaldsskyldir: Uppgjörstímabil eru tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv. Eindagar vörugjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu eru tveir; helmingur upphæðar gjalds gjaldfellur á hvorum eindaga: Fyrsti eindagi er 28. annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Annar eindagi er 28. þriðja mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Dæmi: Eindagar mars-apríl 2013 tímabils eru 28. júní 2013 og 28. júlí 2013 (Þetta er að öllu leyti alveg sama fyrirkomulag og gilti árið 2012, þ.e. frá 1. apríl til 31. desember 2012)

Varðandi það þegar skipta þarf upphæðum gjalda í CUSTAR skeyti (EDI/SMT-tollafgreiðsla) niður á tvo eindaga; afgangur:

Hugbúnaður innflytjanda/tollmiðlara þarf að skipta gjaldaupphæð í CUSTAR skeyti niður á tvo eindaga eftir því sem skuldfærslureglan (skuldfærslukódi) segir til um. Notuð er eftirfarandi regla. Beita skal þessari reglu á samtals gjöld með sömu skuldfærslureglu í aðflutningsskýrslu, en ekki á hverja línu tollskrárnúmers fyrir sig í skýrslunni. Ef ekki er unnt að skipta jafnt niður á eindagana tvo þá fer afgangur á fyrsta eindagann. 1 kr. er skipt niður þannig: 1 kr. á fyrsta eindaga, 0 kr. á annan eindaga 7 kr. er skipt niður þannig: 4 kr. á fyrsta eindaga, 3 kr. á annan eindaga Alltaf þarf að passa upp á að samtals skuldfærð gjöld á öllum línum/tollskrárnúmerum í CUSTAR skeyti stemmi við samtalsupphæðina sem kemur í CUSTAR skeytinu.

Afturvirkni vegna 1. janúar til 31. mars 2013 Með lögum nr. 21/2013 um breytingu á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt, með síðari breytingum (dreifing gjalddaga) var samþykkt lagabreyting, sem gildir einnig um eindaga aðflutningsgjalda er skuldfærð hafa verið/verða á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2013. Á framangreindu tímabili hafa innflytjendur og tollmiðlarar í EDI/SMT-tollafgreiðslu fengið og fá S2 og S4 kóda í CUSTAR skeytum (fá til loka mars 2013). Engu að síður eru eindagar vegna gjalda sem skuldfærð voru og verða á framangreindu tímabili skv. S2 og S4 kódum, þeir tvískiptu eindagar sem greint er frá hér að ofan í skýringartexta með SB og S9 kódum. Greiðsluseðlar frá Tollstjóra vegna innheimtu skuldfærðra aðflutningsgjalda endurspegla þetta.

Tollreikningar á pappír og á vef VEF-tollafgreiðslu Tollreikningar á pappír sem innflytjendur/tollmiðlarar hafa fengið eða fá hjá gjaldkerum Tollstjóra eða af vef VEF-tollafgreiðslu (skuldfærslutilkynningar) eru ekki réttir hvað varðar eindagana vegna vara sem tollafgreiddar eru á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2013. Fyrir vörusendingar sem fá tollafgeiðslu frá og með 1. apríl 2013 verða tollreikningar réttir og endurspegla tvískiptu eindagana.

Yfirlit yfir skuldfærslureglur, uppgjörstímabil og eindaga aðflutningsgjalda árið 2013.

Nánari upplýsingar Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollasviðs hjá Tollstjóra, sími 560 0315

Um tæknilega framkvæmd: Tollkerfadeild, tollasviði hjá Tollstjóra ttu[hja]tollur.is eða þjónustvakt: 560 0505

Til baka