Breyting á reglum um smásendingar
27.03.2013
Í dag tók gildi breyting á reglugerð 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru. Breytingin varðar smásendingar. Tollverð smásendingar má nú ekki vera yfir 40.000 í stað 30.000 áður. Eftir sem áður teljast ekki til smásendinga vörur sem háðar eru innflutningstakmörkunum eða -banni og ekki mega vörurnar vera fluttar inn í atvinnuskyni. Þá er einnig gerð sú breyting að nóg er að viðtakandi staðfesti móttöku með undirritun en ekki er lengur gerð krafa um að sú undirritun sé á tollskýrslu.
Breytingarreglugerðin nr. 279/2013
Reglugerð nr. 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru
Til baka