Varað við röngum auglýsingum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Varað við röngum auglýsingum

26.08.2013

Á því hefur borið að undanförnu, að einstaklingar,  búsettir  erlendis,  bjóðist til að kaupa varning, einkum fatnað fyrir Íslendinga og senda hingað til lands, gegn ákveðinni þóknun sér til handa. Að auki er fullyrt að ekki þurfi að greiða toll né önnur lögbundin gjöld af vörunni, þar sem pakkinn sé merktur sem „gjöf."  Auglýsingar þessa efnis hafa birst á tilteknum vefsíðum á netinu.

Tollstjóri vill vara fólk við þessari fullyrðingu,  því  hún eru beinlínis röng og engin innistæða fyrir henni.  Meginreglan er sú að greiða skuli aðflutningsgjöld af öllum vörum sem fluttar eru til landsins.

Skilyrði undanþáguheimildar  er að um gjöf af sérstöku tilefni sé að ræða. Gjafir vegna afmælis, brúðkaups, jóla eða fermingar teljast meðal annars vera gjafir af sérstöku tilefni í þessu samhengi. Sending þarf einnig að bera það með sér að um sé að ræða gjöf frá gefanda búsettum erlendis og að tengsl séu milli hans og þess sem gjöfina fær. 

Nánari upplýsingar má finna í 32. grein reglugerðar 630/2008 á vefsíðu innanríkisráðuneytisins:  http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/WebGuard.nsf/aa0d47377abc977400256a090053ff91/05a70190634698c80025749d005871b3?OpenDocument&Highlight=0,630%2F2008

Til baka