Tollverðir stöðvuðu ránsparið tvisvar

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir stöðvuðu ránsparið tvisvar

12.12.2013

Árvekni tollvarðar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöld varð til þess að lögreglu var gert viðvart og handtók hún rúmenska parið, sem rændi úr skartgripaverslun á Laugaveginum í vikunni.

Parið vakti  athygli tollgæslu þegar það kom hingað til lands frá London síðastliðinn mánudag. Tollverðir stöðvuðu þá manninn og konuna við hefðbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ýmislegt þótti gefa til kynna að  parið væri hingað komið til að hefja brotastarfsemi og gerðu tollverðir því lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gert viðvart.  Lýst var eftir fólkinu eftir að ofangreint þjófnaðarmál kom upp. Tollvörður sem hafði verið á mánudagsvaktinni, þegar höfð voru afskipti af parinu, þekkti það aftur þegar það birtist í flugstöðinni í gærkvöld. Hafði hann þegar samband við lögreglu, sem handtók fólkið. Leitað var á því í aðstöðu tollgæslunnar í flugstöðinni og annaðist kvenkyns tollvörður leitina á konunni. Fannst þá þýfi.

Til baka