Viljayfirlýsing um gagnkvæma aðstoð í innheimtumálum við Ástralíu

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Viljayfirlýsing um gagnkvæma aðstoð í innheimtumálum við Ástralíu

30.01.2014

Nýlega skrifaði tollstjóri undir viljayfirlýsingu (Memorandum of Understanding) um gagnkvæma aðstoð í innheimtumálum milli Íslands og Ástralíu. Viljayfirlýsingin felur í sér útfærslu verklags og starfsreglna varðandi gagnkvæma aðstoð ríkjanna vegna innheimtumála samkvæmt 11.-16. grein samnings Evrópuráðsins og OECD um gagnkvæma stjórnsýsluaðstoð í skattamálum. Samskonar samningur um aðstoð í innheimtumálum milli Íslands og Bretlands var undirritaður árið 2011.

Til baka