Tóku hálft kíló af sterum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tóku hálft kíló af sterum

26.06.2014

Tollverðir stöðvuðu nýverið póstsendingu, sem innihélt rúmlega hálft kíló af steradufti. Sendingin, sem kom frá Hong Kong var þannig  úr garði gerð að duftinu hafði verið komið fyrir í umbúðum utan af vegglími.

Samkvæmt fyrirliggjandi útreikningum er ljóst að framleiða hefði mátt allt að 125 glös, sem rúma 20 millilítra hvert,  af fljótandi sterum úr þessu duftmagni.

Þess má geta að tollgæslan hefur að undanförnu lagt  hald á umtalsvert magn ólöglegra lyfja, sem annað hvort hafa verið send hingað til lands, eða sem fólk hefur haft í farteskinu við komuna til landsins. Að stórum hluta hefur þar verið um ólögleg stinningarlyf, svo og stera,  að ræða.

Tollstjóri hefur kært málin til viðkomandi lögregluembætta.

Dulbúnir sterar

Dulbúnir sterar

Til baka