Fríverslunarsamningur milli EFTA og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Fríverslunarsamningur milli EFTA og aðildarríkja Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa

23.07.2014

Þann 1. júlí 2014 tók gildi fríverslunarsamningur EFTA við aðildarríki Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa (Flóabandalagið eða GCC) og tvíhliða samningur Íslands og Flóabandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur.

Samstarfsráð Arabaríkjanna við Persaflóa eða GCC samanstendur af Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, Konungsríkinu Barein, Konungsríkinu Sádi-Arabíu, Soldánsveldinu Óman, Katar og Kúveit.

Með ályktun alþingis frá 16. maí 2012 var ríkisstjórninni veitt heimild til þess að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss) annars vegar og Flóabandalagsins hins vegar. Samningur þessi hefur nú verið fullgiltur af samningsaðilum.

Samningaviðræður EFTA-ríkjanna við Flóabandalagið tóku tvö ár, en þeim lauk í apríl 2008.

Samningurinn inniheldur, auk ákvæða um vöruviðskipti, ákvæði um þjónustuviðskipti, fjárfestingar, hugverkaréttindi, samkeppnismál, opinber innkaup, stofnanaákvæði og ákvæði um lausn deilumála.

Samningurinn kveður á um lækkun eða niðurfellingu tolla á iðnaðarvörur, sjávarafurðir og unnar landbúnaðarvörur. Þannig munu tollar á sjávarafurðir og allar helstu iðnaðarvörur frá Íslandi falla niður frá gildistöku samningsins eða að loknu fimm ára aðlögunartímabili.

Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn og kveður hann á um að tollar á tilteknar landbúnaðarvörur verði lækkaðir eða felldir niður. Mun Flóabandalagið t.d. fella niður tolla á lifandi hross og íslenskt lambakjöt og mun Ísland fella niður tolla á ýmsar matjurtir, kaffi, kakó og ávaxtasafa. Landbúnaðarsamningurinn öðlast gildi sama dag og fríverslunarsamningurinn.

Samningana við Flóabandalagið og ítarlegar upplýsingar um þá er að finna hér (pdf).
 

Ný tegund tolls - tollskýrslugerðarhugbúnaður og nýir tollskárlyklar vegna innfluttra vara

Vegna fríverslunarsamningsins öðlaðist ný tegund tolls gildi þann 1. júlí 2014. Lykill fyrir tegund tollsins er YF.

Landalyklar fyrir upprunalöndin sem fríverslunarsamningurinn nær til:

  • AE Sameinuðu Arabísku Furstadæmin
  • BH Barein (Bahrein)
  • KW Kúveit (Kuwait)
  • OM Óman
  • QA Katar (Qatar)
  • SA Sádi Arabía

Tollskýrslugerðarhugbúnaður: Stofna þarf nýja tegund tolls, YF kóda, í töflu tegunda tolla og landakódar á YF tolli skulu vera: AE, BH, KW, OM, QA og SA.

Útfylling aðflutningsskýrslu/útflutningsskýrslu
Þegar óskað er eftir fríðindameðferð við innflutning samkvæmt nefndum samningum skal færa lykilinn YF fremst í reit 33 við gerð aðflutningsskýrslu (E-1) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 8 og 34 skal tilgreina landalykilinn viðkomandi aðildarríkis GCC, t.d. BH (Barein). Í reit 14 skal tilgreina skammstöfunina EUR og númer EUR. 1 flutningsskírteinis (t.d. EUR 1234567) eða textann "EUR YFIRLÝS" ef upprunayfirlýsing er á vörureikningi.

Ný útgáfa af tollskrárlyklum vegna innflutnings, þar sem YF tegund tolls hefur verið skráð á öll viðkomandi tollskrárnúmer vegna innflutnings, er nú aðgengileg á vefsíðu tollskrárlykla á vef Tollstjóra. Nýja útgáfan gildir afturvirkt frá 1. júlí 2014.

Þegar óskað er eftir  fríðindameðferð við útflutning samkvæmt nefndum samningum skal færa lykilinn EX í reit 1 (markaðssvæði) við gerð útflutningsskýrslu (E2) eða vegna SMT- eða VEF-tollafgreiðslu. Í reit 17, ákvörðunarland, skal tilgreina landalykil viðkomandi aðildarríkis GCC. Ákvörðunarland er endastöð vöruflutninganna. Í reit 34a, upprunaland, skal skrá IS, ef íslensk upprunavara, en landalykil viðkomandi aðildarríkis GCC ef upprunavara, áður flutt beinum flutningi til Íslands, er að fara aftur til aðildarríkis GCC. Færa skal í reit 44 þriggja bókstafa skammstöfun fyrir skírteinið EUR, bókstafinn A og númer þess þar fyrir aftan (dæmi: EURA123456) en orðið: YFIRLÝSING ef upprunayfirlýsing er gefin á vörureikningi.

Að öðru leyti vísast til bæklinga um tollskýrslugerð vegna innflutnings og útflutnings.

 

Nánari upplýsingar

Í VEF-tollskránni á vef Tollstjóra er unnt að sjá hvort YF tegund tolls, tollfríðindameðferð skv. fríverslunarsamningnum, er valkostur á tollskrárnúmeri.

Upplýsingar um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315
 
Upplýsingar um tæknilega framkvæmd í tölvukerfum og tengd atriði:
Upplýsingatæknideild, rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Tollstjóra, ttu[hja]tollur.is eða þjónustuvakt, sími: 560 0505

Til baka