Tollverðir haldlögðu afritunarbúnað
09.10.2014
Tollverðir stöðvuðu nýverið erlendan karlmann sem var að koma til landsins og fundu þeir í farangri hans búnað til afritunar á greiðslukortum við notkun þeirra í hraðbönkum. Maðurinn, sem er búlgarskur ríkisborgari, fæddur 1983, var að koma með flugi frá Helsinki, þegar hann var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Honum var ekki hleypt inn í landið eftir að tollverðirnir höfðu fundið búnaðinn.
Lögreglan á Suðurnesjum fór með rannsókn málsins og játaði maðurinn sök. Honum var síðan frávísað og er hann nú farinn af landi brott.
Búnaðurinn sem haldlagður var: