Komu með búnað til að opna lása

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Komu með búnað til að opna lása

23.10.2014

Tollverðir á Seyðisfirði haldlögðu nýverið búnað, sem notaður er til að opna lása. Búnaðurinn fannst við leit í bifreið, sem kom til landsins með Norrænu á vegum þriggja manna, sem sjálfir komu með flugi til landsins. Var hann haldlagður á  grundvelli 161. gr. tollalaga, sbr. 68. gr. laga um meðferð sakamála.

Þremenningarnir, sem allir eru af erlendu bergi brotnir kváðust  ætla að dvelja hér í mánuð. En eftir að búnaðurinn hafði verið haldlagður breyttu þeir  áformum sínum skyndilega og hröðuðu för sinni úr landi með bílinn. Búnaðurinn samanstóð af fjórum litlum kössum með opnunarlyklum og örfínum sexkanti auk fleiri muna, sem taldir eru tengjast lásaopnun.  Að auki var fjaðurhnífur haldlagður.

Tollverðir spurðu mennina um fyrirhugaða notkun á þessum búnaði áður en hinir síðarnefndu yfirgáfu landið. Skýringar þær sem aðilar þessir gáfu tollvörðum voru metnar ótrúverðugar og er það mat Tollstjóra að líkur séu á því að búnaðinn hafi átt að nota í óheiðarlegum tilgangi og aðgerðir tollgæslunnar hafi komið í veg fyrir þau áform.

 

Hluti búnaðarins sem mennirnir höfðu meðferðis:

Lásaopnunarbúnaður

Til baka