Tugum falsaðra húsgagna fargað

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tugum falsaðra húsgagna fargað

06.11.2014

Rúmlega 50 stykkjum af húsgögnum var fargað fyrr í vikunni, undir eftirliti embættis Tollstjóra, þar sem þau reyndust vera eftirlíkingar af hönnunarfyrirmyndum. Um var að ræða eftirlíkingar af stólunum Egginu, Svaninum og Corona,  og svo Arco lampanum. Einnig  voru í umræddri sendingu eftirlíkingar af Cassina LC stólnum, sófum og borði.

Húsgögnin komu hingað til lands í tveimur gámum frá Kína sumarið 2011.  Tollstjóri frestaði afgreiðslu varanna þar sem talið var að um eftirlíkingar af frumhönnun velþekktra erlendra hönnuða væri að ræða. Erlendir rétthafar stefndu innflytjandanum síðan fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur sem kvað upp þann dóm fyrr á árinu 2014  að húsgögnin, sem voru í vörslu Tollstjóra  skyldu afhent rétthöfum til eyðingar og þeim eytt undir eftirliti embættis Tollstjóra. Innflytjandinn var dæmdur til  að greiða 1.5 milljónir í  málskostnað.

Frá eyðingu húsgagnanna:

Förgun húsgagna

Til baka