Faldi nær kíló af hassi í möppu

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Faldi nær kíló af hassi í möppu

19.05.2015

Erlendur karlmaður  sem tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fundu hjá nær kíló af hassi fyrr í þessum mánuði hefur nú hlotið dóm í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn, sem er á fertugsaldri,  var að koma með flugi frá Kaupmannahöfn. Tollverðir fundu efnin, samtals 781 gramm af hassi,  í farangri hans. Efnunum hafði hann pakkað inn í möppu.

Lögreglan á Suðurnesjum fór með rannsókn málsins. Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sakarkostnaðar.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

  

Hassið sem tollverðir fundu í farangri mannsins.

Hassið sem tollverðir fundu í farangri mannsins

Til baka