Tollverðir haldlögðu umtalsvert magn stera

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir haldlögðu umtalsvert magn stera

30.06.2015

Karlmaður á fertugsaldri varð nýverið uppvís að því að ætla að smygla umtalsverðu magni af meintum sterum og öðrum lyfseðilsskyldum lyfjum til landsins. Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu manninn við komu hans frá Berlín. Þeir fundu í fórum hans vel á annað þúsund ambúlur, sem innihéldu ríflega 1500 millilítra af sterum, ásamt um sex þúsund steratöflur, auk lyfja. Efnunum hafði maðurinn, sem er íslenskur, komið fyrir í ferðatösku sinni. 

Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um fundinn og handtóku lögreglumenn manninn og færðu hann á lögreglustöð. Mál hans er í rannsókn.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem tollverðir haldleggja ólögleg efni. Hitt málið kom upp þegar þeir fundu við hefðbundna leit í gámi í skipi í Sundahöfn rúmlega tvö kiló af meintu kókaíni sem hafði verið komið fyrir í bakpoka. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það mál.

Tollstjóri veitir ekki frekari upplýsingar um ofangreind mál þar sem  þau eru nú í höndum lögreglu. Jafnframt er minnt á  fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Sterarnir sem haldlagðir voru:

Sterarnir sem haldlagðir voru

Til baka