Tollverðir stöðvuðu dagatöl sem innihéldu kókaín

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir stöðvuðu dagatöl sem innihéldu kókaín

05.11.2015

Þær eru ótrúlegar leiðirnar sem notaðar eru til að reyna að smygla fíkniefnum hingað til lands. Fyrr á árinu barst hingað til dæmis bögglapóstsending sem í voru 34 pappírsdagatöl heftuð á pappaspjöld. Tollverðir stöðvuðu sendinguna og við skoðun á dagatölunum vaknaði grunur um að í þeim leyndust fíkniefni.

Sá grunur reyndist á rökum reistur því við efnagreiningu á  efni sem fannst í þeim reyndust þau innihalda samtals allt að 100 grömmum af kókaíni. Hafði kókaíninu verið komið fyrir í dagatölunum m.a. með því að bleyta pappann með upplausn sem innihélt efnið.

Sendingin kom frá Brasilíu og var stíluð á íslenskan einstakling. Málinu var vísað til lögreglu, en það telst óupplýst.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Kókaíni hafði verið komið fyrir í þessum dagatölum:

Til baka