Tollskóli ríkisins - Tollmiðlaranámskeið

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollskóli ríkisins - Tollmiðlaranámskeið

18.11.2015

Tollskóli ríkisins auglýsir Tollmiðlaranámskeið sem haldið verður dagana 18. janúar til 19. febrúar 2016. Námskeiðið er 100 kennslustundir og er kennt alla daga vikunnar frá kl. 13.00 – 16.00.

Á námskeiðinu er farið yfir lög og reglur sem gilda um tollmeðferð vöru, þar á meðal:

  • tollflokkun,
  • tollskýrslugerð,
  • meðferð ótollafgreiddrar vöru,
  • ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og upplýsingum sem veittar eru tollyfirvöldum,
  • reglur um greiðslufrest aðflutningsgjalda.

Athygli er vakin á því að starfsmönnum tollmiðlara sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra ber skylda til að sækja námskeiðið.

 

Kostnaður: 135.000 kr.

Skráningarfrestur er til 8. janúar 2016

Skráning sendist á netfangið: jenny.steinarsdottir[hja]tollur.is

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir[hja]tollur.is

Til baka