Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl. vegna tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2016

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl. vegna tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2016

23.12.2015

Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.
Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2016 nema annað sé tekið fram.

Ábendingar
Útflutningur - Um útflutning gildir: Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer, skilmála þess og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar frá Íslandi, sem útflutningsskýrslan tekur til. Sama gildir þegar leiðrétta eða breyta þarf útflutningsskýrslum eftir tollafgreiðslu. 

Innflutningur - Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).

Á vef Tollstjóra má skoða annarsvegar tegundir tolla og hinsvegar önnur aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir 1. janúar með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu. Ennfremur fást upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Tollstjóra. (búið er að uppfæra gögnin, en villuprófun stendur yfir).

1.
Lækkun tolla á fatnað, ís, bleiur o.fl.
Á neðangreindum vöruliðum og tollskrárnúmerum verður A tollur 0% og/eða  A1 magntollur 0 kr./kg.:
2105.0021, 2105.0029, 3926.2000, 4011.5000, 4013.2000, 4015, 4203, 4303, 4818.5000, 6101–6117, 6201–6217, 6309.0000, 6401–6406, 6504.0000, 6505.0000, 6506, 6507, 6812.9100, 8306.1010, 8714.9100–8714.9900, 9606, 9607, 9619.0011, 9619.0012, 9619.0091 

Heimild: 14. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

2.
Lækkun virðisaukaskatts áfengis úr 24% í 11%
Virðisaukaskattur á neðangreindum tollskrárnúmerum verður Ö5 11% VSK:

2203.0091–2203.0099
2204.1021–2204.1029 2204.1031–2204.1039 2204.2121–2204.2129 2204.2141–2204.2149 2204.2151–2204.2159 2204.2161–2204.2169 2204.2191–2204.2199 2204.2921–2204.2929 2204.2941–2204.2949 2204.2951–2204.2959 

2204.2961–2204.2969
2204.2991–2204.2999 2204.3021–2204.3029 2205.1021–2205.1029 2205.1091–2205.1099 2205.9021–2205.9029 2205.9091–2205.9099 2206.0041–2206.0049 2206.0051–2206.0059 2206.0081–2206.0089 2208.2021–2208.2029 

2208.2081–2208.2089
2208.3011–2208.3019 2208.4011–2208.4019 2208.5031–2208.5039 2208.5041–2208.5049 2208.6011–2208.6019 2208.7081–2208.7089 2208.9021–2208.9029 2208.9031–2208.9039 2208.9081–2208.9089 2208.9091–2208.9099

Heimild: 26. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

3.
Kolefnisgjöld á eldsneyti, K* gjöld, hækka
Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2   Kolefnisgjald. Gas- og díselolía:  6,00 kr/lítra
K3   Kolefnisgjald. Bensín:  5,25 kr/lítra
K5   Kolefnisgjald. Brennsluolía:  7,40 kr/kg
K6   Kolefnisgjald. Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni:  6,60 kr/kg 

Heimild: 35. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

4.
Vörugjald af bensíni, LB gjald, hækkar
Gjaldið verður:
LB   Vörugjald af bensíni: 25,60 kr/lítra. 

Heimild: 29. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

5.
Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld, hækka
Gjöldin verða:
C1   Blýlaust bensín: 41,30 kr/lítra
C2   Annað en blýlaust bensín: 43,80 kr/lítra 

Heimild: 30. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

6.
Olíugjald, C3 gjald, hækkun
Gjaldið, C3, olíugjald á gas- og dísilolíu og ennfremur á steinolíu til ökutækja verður 57,40 kr/lítra 

Heimild: 32. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016

7.
Áfengisgjöld, VX, VY og VZ, hækka
Áfengisgjöld verða:
VX  Áfengisgjald 112 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Öl o.fl.
VY   Áfengisgjald 102 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Vín
VZ   Áfengisgjald 138 kr/cl af vínanda umfr. 0% - Annað áfengi 

Heimild: 16. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

8.
Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2 hækka
Tóbaksgjöldin verða:
T1   Tóbaksgjald – vindlingar:  577,60 á hvern pakka; 20 vindlingar
T2   Tóbaksgjald - annað tóbak:  28,85 kr/gramm; grömm í lítrareit vörulínu í E1 ebl. 

Heimild: 19. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

9.
Skilagjöld á einnota umbúðir drykkjarvara, G* gjöld, hækkun
Taxti skilagjalds er óbreyttur 14,41 kr/stk, en umsýsluþóknanir hækka. Umsýsluþóknun er ekki á álumbúðum. Skilagjöldin verða því þessi:

Umbúðir drykkjarvöru

 Taxti.

 Umsýsluþóknun kr/stk

         Samtals

 Gjaldakódi við

 kr/stk

Var

Verður

 taxti gjalds kr/stk

 tollafgreiðslu

Stál

14,41

5,00

5,50

19,91

GB

Ál

14,41

14,41

GC

Gler > 500 ml

14,41

4,30

5,30

19,71

GD

Gler = eða < 500 ml

14,41

3,10

3,90

18,31

GE

Plastefni, litað

14,41

2,55

3,20

17,61

GF

Plastefni, ólitað

14,41

1,01

1,30

15,71

GG

Heimild: Reglugerð nr. 1053/2015, um (11.) breytingu á reglugerð nr. 368/2000, um söfnun, endurvinnslu og skilagjald á einnota umbúðir fyrir drykkjarvörur

10.
Breyting á tollskrá
Breytingin er skv. auglýsingu nr. 121/2015 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88 18. maí 2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda). 

11.
Breytingar á gjalddögum uppgjörstímabila vegna skuldfærslu aðflutningsgjalda við tollafgreiðslu; fyrirkomulag fært til fyrra horfs frá og með 1. janúar 2016
Á árinu 2015 hafa verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestir (fleiri gjalddagar) á aðflutningsgjöldum, sbr. ákvæði til bráðabirgða nr. XII við Tollalög nr. 88/2005. Þær reglur falla úr gildi þann 31. desember 2015.
Frá og með 1. janúar 2016 taka fyrri reglur um uppgjörstímabil og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi.

Þeir innflytjendur og tollmiðlarar sem stunda SMT/EDI tollafgreiðslu þurfa sérstaklega að skoða þessar breytingar m.t.t. þess að hugbúnaður þeirra til rafrænnar tollafgreiðslu virki rétt, þ.e. móttaka CUSTAR skeyta og úrvinnsla upplýsinga í þeim. CUSTAR skeytin eru tilkynningar frá Tollstjóra um tollafgreiðslu vörusendingar og skuldfærslu aðflutningsgjalda. 

12.
Greiðslufrestur áfengisgjalda (VY, VX & VZ) – skráðir innflytjendur áfengis, sbr. 3. gr. áfengislaga nr. 75/1998 – 1 mánaða uppgjörstímabil
Sú breyting verður á greiðslufresti áfengisgjalda að áður fengu þau skuldfærslu á tveggja vikna uppgjörstímabil við tollafgreiðslu með eindaga annan virka dag eftir lok uppgjörstímabils en fá nú skuldfærslu á eins mánaða uppgjörstímabil með eindaga annan virka dag eftir lok uppgjörstímabils
Skv. 17. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016 taka gildi breytingar á reglum um hvernig áfengisgjöld eru skuldfærð við tollafgreiðslu; breytingar á gjalddaga.  Gera þarf breytingar á hugbúnaði sem notaður er við EDI/SMT-tollafgreiðslu innfluttra vara hjá innflytjendum og tollmiðlurum.  Breytingunum á skuldfærslu gjalda er lýst hér að neðan og áhrif þeirra á EDI/SMT-tollafgreiðsluna o.fl. 

Þegar EDI/SMT-aðflutningsskýrsla fær tollafgreiðslu hjá Tollstjóra er EDI-skeyti, nefnt CUSTAR skeyti, sent til innflytjanda eða e.a. tollmiðlara, nefnt skuldfærslutilkynning, sem lesið er inn í hugbúnað hans.  Í skeytinu eru m.a. upplýsingar um álögð og skuldfærð gjöld, sundurliðuð niður á hvert tollskrárnúmer/línu í skýrslunni. Fyrir hvert gjald á tollskrárnúmeri eru upplýsingar um hvernig gjald er skuldfært; skuldfærslukódi, S2, S6 o.fl. kódar, sem gefa til kynna gjalddaga tolls/gjalds.  Í hugbúnaði innflytjanda/tollmiðlara eru síðan töflur sem túlka þessa kóda miðað við tollafgreiðsludag í CUSTAR skeytinu. Hver skuldfærslukódi segir til um uppgjörstímabil og gjalddaga gjalda, sem skuldfærð eru á uppgjörstímabili skv. reglu kódans.  Þetta getur síðan haft áhrif á birtingu upplýsinga á skjá, útprentunum í hugbúnaði o.fl.

Breytingarnar varða þennan kóda:
S3 kódi, áfengisgjald skráðra áfengisaðila:
Uppgjörstímabil er tvær vikur.  1.-15. hvers mánaðar og 16. til loka mánaðar. 

Frá og með 1. janúar 2016 verður neðangreindur skuldfærslukódi í CUSTAR skeytum í stað S3 kóda:

SC (kemur í stað S3) kódi, áfengisgjald – skráðir áfengisaðilar – 1 mánaða uppgjörstímabil :
Uppgjörstímabil er einn mánuður, frá 1. hvers mánaðar til loka hans.
Gjalddagar gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu er 2. virkur dagur eftir lok uppgjörstímabils.
Dæmi: Eindagi janúar 2016 tímabils er: 2. febrúar 2016 

Sjá nánar yfirlit yfir uppgjörstímabil og eindaga aðflutningsgjalda

Heimild: 17. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016

13.
Undanþáguheimild, VSKÖT undanþágukódi, lækkun virðisaukaskatts á rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðum, framlengd til 31. desember 2016
Eftirfarandi heimild í ákvæðum til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt er framlengd til 31. desember 2016 (Undanþágukódi VSKÖT): Við innflutning og skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar er heimilt að fella niður virðisaukaskatt eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki eins og nánar er kveðið á um í ákvæði þessu. (Sjá nánar ákvæðið í lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt

Heimild: Sjá um framlenginguna í 24. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

14.
Undanþáguheimild, LÖT18 undanþágukódi, lækkun á vörugjaldi (M* gjöld) af ökutækjum bílaleiga
Hámarks lækkun vörugjalds af ökutækjum sem bílaleigur leigja út lækkar í 500.000 kr. 

Heimild: 31. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.

15.
Reglugerðir um tollkvóta
Reglugerð nr. 1023/2015 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Birt 16. nóvember 2015.
Gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2016. 

Reglugerð nr. 1091/2015 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 9. desember  2015.
Gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2016.

Reglugerð nr. 1092/2015 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 9. desember 2015.
Gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2016. 

Reglugerð nr. 1218/2015 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum samkvæmt viðauka IVA og IVB við tollalög.
Birt 30. desember  2015.
Gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2016. 

16.
Lokun á sjálfvirkri EDI/VEF-tollafgreiðslu
Lokað verður fyrir sjálfvirka EDI/VEF-tollafgreiðslu hjá Tollstjóra frá kl. 13:00, 31. desember 2015 til kl. 12:00, 2. janúar 2016 vegna breytinga á gjöldum og tölvuvinnslu hjá Tollstjóra.

17.
Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði
Tollskrárlyklar, sem taka gildi 1. janúar 2016 vegna tollafgreiðslu, verða aðgengilegir hér á vef Tollstjóra 30. desember 2015

18.
Nánari upplýsingar
Um tæknilega framkvæmd: Upplýsingatæknideild, Rekstrar- og upplýsingatæknisviði, hjá Tollstjóra
ttu[hja]tollur.is eða þjónustuvakt, sími: 560 0505 

Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315

Til baka