Íslenskur hundaþjálfari á útkallslista Frontex

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Íslenskur hundaþjálfari á útkallslista Frontex

06.06.2016

Aðalhundaþjálfari Tollstjóra, Ingibjörg Ylfa Ólafsdóttir, er komin á útkallslista Frontex, Landamærastofnunar Evrópu,  og hefur fengið fullgild réttindi sem „European Border Guard (EUBG) Canine Team Instructor. “  Hún hefur þar með öðlast  réttindi til að kenna leitarhundaþjálfun og dæma úttektir á leitarhundum á vegum Frontex í öðrum löndum. Útnefninguna hlaut hún eftir að hafa lokið fimmþættu prófi,  sem haldið var á vegum Tollstjóra nýverið, með heildareinkunninni „Outstanding, “ eða framúrskarandi. Áður hafði hún lokið leiðbeinandanámi hjá Frontex. Samtals eru nú 22  manns á útkallslistanum og er Ingibjörg Ylfa eini Íslendingurinn sem lokið hefur umræddu námi og er á ofangreindum lista.

„Það, að vera komin með alþjóðlega gæðavottun á starfi hundateyma embættisins auðveldar okkur samstarf við aðrar opinberar stofnanir hvað áframhaldandi menntun og þjálfun í opinberri þjónustu varðar,“ segir Ingibjörg Ylfa, spurð um þýðingu þessa áfanga.

Mikil vinna inna hefur verið í gangi hjá Frontex á undanförnum árum  við að samræma kröfur sem gerðar eru til hundateyma sem starfa á landamærum Schengen - og Evrópusambandsins.  Reynsla hefur leitt í ljós að erfiðleikum getur verið háð að skipa hundateymi í vinnu í samstarfsverkefnum milli  landa þar sem kunnátta, þjálfun og kröfur til getu leitarhunda  eru mismunandi frá einu landi til annars.  Því var þróaður staðall  sem kveður skýrt á um hvað hundateymi þarf að kunna og geta til að öðlast viðurkenningu í Evrópu. Á grunni staðalsins var svo útbúið leiðbeinendanám þar sem þátttakendur voru m.a. látnir þjálfa sína vinnuhunda og standast úttektir með þeim til að fá útskrift.  Teymisvinnuna í verkefninu vann Ingibjörg Ylfa ásamt fíkniefnaleitarhundi embættis Tollstjóra, Kötu.

 

Ingibjörg Ylfa með fíkniefnaleitarhundinn Kötu.

Viðurkenningin afhent. Með Ingibjörgu Ylfu á myndinni er dómarateymi Frontex, sem kom frá Noregi og Finnlandi.

Til baka