Kvennafrídagurinn - kjarajafnrétti strax!
Í dag, mánudaginn 24. október 2016, eru konur hvattar til að leggja niður störf kl. 14:38, mæta á samstöðufund á Austurvelli kl. 15:15 og/eða taka þátt á táknrænan hátt í samstöðu um kröfuna um „kjarajafnrétti strax“.
Tollstjóri styður jafnrétti og reiknar með að margar konur sem starfa hjá embættinu muni mæta á samstöðufundinn á Austurvelli. Af þeim sökum verður óhjákvæmilega skert þjónusta í afgreiðslu Tollstjóra frá kl. 14:30 í dag 24. október. Bent skal á að ekki verður hægt að taka á móti greiðslum.
Við minnum á að hægt er að greiða skatta og gjöld inná eftirfarandi reikning:
Banki |
Hb. |
Reikn.nr. |
Kennitala |
0101 |
26 |
85002 |
650269-7649 |
Vinsamlega sendið skýringar á greiðslum inn á þennan reikning á netfangið 85002[hja]tollur.is
Við minnum jafnframt á að afgreiðsla Tollstjóra er opin til kl. 18:00 á fimmtudögum.
Til baka