Tollverðir gómuðu stórtæka ilmvatnsþjófa

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir gómuðu stórtæka ilmvatnsþjófa

15.12.2016

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar höfðu fyrr í mánuðinum afskipti af tveimur erlendum ferðamönnum vegna þjófnaðar á ilmvötnum. Mennirnir voru stöðvaðir í grænu hliði og reyndust þeir vera með ilmvatnsbirgðir, að verðmæti langt umfram það sem leyfilegt er að koma með til landsins. Tollverðir haldlögðu því umfram varninginn.

Daginn eftir birtust þeir aftur í flugstöðinni, þá á leið úr landi. Tollverðir ákváðu að kanna með mennina og við heimilaða leit í farangri þeirra fundust tólf ilmvatnsglös að verðmæti tæplega 150 þúsund krónur og BOSE bluetooth ferðahátalari að andvirði  tæplega 35 þúsund krónur.

Í ljós kom að mennirnir höfðu látið greipar sópa í fríhöfninni og var málið kært til lögreglunnar á Suðurnesjum.

Til baka