Námskeið í tollskýrslugerð
Námskeið í tollskýrslugerð verður haldið í Tollskóla ríkisins dagana 13. – 24. febrúar 2017. Þátttakendur fá þjálfun í gerð tollskýrslu vegna inn- og útflutnings auk þess sem farið verður yfir helstu reglur, fylgiskjöl, útreikninga, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð o.fl. Kennsla fer fram á Tryggvagötu 19 kl. 8.30 – 12.20.
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 13.; 15.; 17.; 20., 22. og 24. febrúar
Tími: kl. 8.30 – 12.20
Staður: Tollhúsið Tryggvagötu 19.
Kostnaður: 40.000 kr.
Skráningarfrestur er til 10. febrúar n.k.
Skráning sendist á netfangið: sigridur.arna.olafsdottir[hja]tollur.is
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir[hja]tollur.is
Til baka