Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

01.02.2017

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins hefst 27. febrúar n.k.. Námskeiðið er 100 kennslustundir og stendur frá 27. febrúar - 7. apríl n.k.

Á námskeiðinu er farið yfir lög og reglur sem gilda um tollmeðferð vöru, þar á meðal:

  • tollflokkun,
  • tollskýrslugerð,
  • meðferð ótollafgreiddrar vöru,
  • ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og upplýsingum sem veittar eru tollyfirvöldum,
  • reglur um greiðslufrest aðflutningsgjalda.

Athygli er vakin á því að starfsmönnum tollmiðlara sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra ber skylda til að sækja námskeiðið.

 

Nánari upplýsingar:

Dagsetning: 27. febrúar - 7. apríl

Tími: kl. 13.00 - 16:00.

Lengd: 100 kennslustundir.

Kostnaður: 140.000 kr.

Skráningarfrestur er til 20. febrúar 2017.

Skráning sendist á netfangið: sigridur.arna.olafsdottir[hja]tollur.is

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir[hja]tollur.is

Til baka